Já í dag er hinn árlegi alþjóðadagur fatlaðra, stal þessum texta af síðu Öryrkjabandalagsins www.obi.is
Deginum er ætlað að ýta undir þekkingu og skilning á málefnum fatlaðra og kalla fram stuðning við virðingu, réttindi, jafnræði og velferð fatlaðra. Einnig að auka vitneskju um ávinning þann sem allt samfélagið hefur af því að fatlaðir séu fullir þátttakendur, jafnt út frá pólitískum, félagslegum, efnahagslegum og menningarlegum sjónarmiðum.
Að þessu sinni hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að þema dagsins verði "Atvinna við hæfi fyrir einstaklinga með fötlun".
Í ljósi þessa má segja að það hafi verið vel við hæfi að hvatningarverðlaun í flokki fyrirtækja hlaut ,,móðir náttúra" fyrir verkefnið ,,allt að vinna"
Gaman líka að segja frá því að í flokki einstaklinga vann Freyja Haraldsdóttir bekkjarsystir 
Og gleðin heldur áfram, því ástkær skólinn minn hlaut í dag múrbrjót Þroskahjálpar. Ástæðan fyrir að skólinn þótti framúrskarandi er auðvitað starfstengda diplómunámið fyrir fólk með þroskahömlun sem hófst í haust. Gaman að því
Einar gleðifréttir í viðbót áður en ég sný mér aftur að helv. ritgerðunum.... Ég og ein bekkjarsystir mín unnum saman að rannsóknarritgerð í þroskasálfræði um daginn... vorum að fá einkunn; 9,4 þakka ykkur fyrir
ég er alveg að springa úr stolti
PS: fólk
ég hætti að vera svona dugleg að blogga ef enginn kommentar (einn er ekki alveg nóg miðað við að um 20 manns heimsækja síðuna á hverjum degi!)
Later
Krónan